Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Bernarfjallahundastelpurnar
Bernarfjallahundastelpurnar

Búið að sæða

Dóra var sædd í gær og í dag.

Nú er ekkert meira hægt að gera í bili en að krossa fingur og vona að náttúrunni sé þóknanlegt að úr þessu verði til Bernerkrútt fyrir okkur.

Dóra fer í sónar 18. ágúst - þangað til veit enginn hvað verður.

0 | 26.7.2011 22:55:24 #

Sæðið er komið!

Þá er sæðið komið til landsins og í vörslu Helgu Finns.

Fyrstu mælingar hjá Dóru sýna að hún er að byrja að fara upp og ef ferillinn heldur sér í mælingu á morgun verður hugsanlega byrjað að sæða á mánudaginn.

Þetta er allt að gerast.

0 | 21.7.2011 12:03:16 #

Sendingin á leiðinni...

Sendingin er lögð af stað, reyndar enn í Þýskalandi en á leiðinni engu að síður :-D

Fyrsta hjalla lokið.

0 | 18.7.2011 20:33:01 #

Aftur í gang

Isberner-síðan hefur legið í dvala um nokkurt skeið. Eftir að Folda dó 20. október 2009 hætti ég að skrifa um hundamál, en nú skal bætt úr því.

Dóra varð íslenskur meistari á sumarsýningunni 2010 og titlar sig nú ISCh Isa-Dora vom Stieracker. Hún er orðin 4ra ára gömul og er afar ljúf og skemmtileg tík. Þjálfun hennar hefur verið mest fyrirhafnarlaus, enda kenndi Folda henni allt sem hún þarf að vita og skiptir máli.

Við vonumst til að geta fært ykkur fréttir jöfnum höndum og lofum að halda okkur betur við efnið.

0 | 27.6.2011 16:23:17 #

Datt skyndilega í hug seinni partinn í dag að grafa fram aðra hundakerruna en ég hef ekkert spennt hundana til dráttar þetta sumarið. Folda hefur ekki verið nógu hraust og Dóra tók ekki nógu vel í dráttinn þegar hún var loksins komin með aldur til að draga sjálf síðasta sumar.

Fyrst var Folda spennt fyrir kerruna. Hún sperrti sig öll og reygði sem vant er af stolti og ábyrgðarkennd fyrir verkinu. Fyrst drógum við bara létt fram og til baka og ég hjálpaði henni verulega í beygjunum, en hún vildi meira og fannst þetta greinilega jafn gaman og vant er. Svo fékk Stefán Jón 2ja ára að setjast aðeins í vagninn fyrir myndatöku, en þá langaði þau bæði að fara aðeins af stað. Folda dróg Stefán með dyggilegri aðstoð (hélt í ól sem var bundin í kerruna og tók helsta þungann af henni). Við skiluðum Stefáni Jóni af okkur og héldum enn eina ferð út götuna en þá var var Folda búin að fá nóg. Ég spennti hana frá og hún fékk að drekka og hvíla sig.
 
Þá tók ég bara beltið með keðjunum og setti á Dóru. Það var eins og loksins smylli eitthvað rétt í höfðinu á henni. Kannski er hún bara svona seinþroska, þessi elska, en hún fann sig aldrei við kerrudrátt í fyrrasumar. Núna hins vegar rétti hún úr sér og gekk hægt og virðulega við hæl með keðjurnar dinglandi aftan úr sér. Eftir nokkrar ferðir fram og til baka um götuna tókum við okkur stöðu við kerruna skorðaða upp við grindverk. Ég tók armana niður og lagði á jörðina sitt hvoru megin við hana. Hún slakaði á, settist og lagðist, settist svo og stóð að lokum upp að nýju. Þá þrengdi ég allt beltið í minnstu stellingar (hún er svo mikið smærri en Folda) og festi svo armana við beltið. Hún lötraði af stað, og var hálfóstyrk til að byrja með en eftir mikla hjálp við hæga og gríðarlega víða beygju færðist öryggið yfir hana og hún dróg kerruna af stolti. Næsta beygja gekk miklu betur og við fórum heilan hring í lokin, en svo spennti ég hana frá og hrósaði mikið. Hún var auðsjáanlega stolt af sjálfri sér fyrir verkið og nú er á stefnuskránni að spenna hana fljótlega fyrir kerru aftur.

Það var svo gaman að sjá kerrudráttinn loksins ganga upp hjá Dóru. Ég var farin að hafa áhyggjur af því að í fyrra hafi ég gert einhver mistök við þjálfunina sem gerðu Dóru ef til vill afhuga kerrudrætti til frambúðar - sem mér hefði þótt hrikalega leiðinlegt þar sem þetta er hið raunverulega hlutverk tegundarinnar og Berner vanalega aldrei stoltari en þegar hann er spenntur til dráttar.
0 | 30.7.2009 22:54:59 #

Frábærlega vel heppnuðum Stórhundadögum sem fram fóru í versluninni Garðheimum þessa helgi er lokið.

Við tókum þátt í tegundakynningu á Bernarfjallahundum eða Berner Sennen á frummálinu á Stórhundadögum þessa helgi.

Laugardagurinn gekk vel. Dóra var ánægð með alla athyglina, klapp og klór gestanna, en þreytt þegar heim var komið á laugardagskvöld. Folda var ekki jafn ánægð. Henni þótti þessi uppákoma bjóða upp á fullmikla athygli ókunnugra og var því bara stutta stund í senn á tegundabásnum okkar. Sérstaklega var skondið að þegar hún var tekin inn í smá stund meðan Dóra og Eiko fengu hvíld um miðjan daginn vildi hún helst bara liggja en brölti á fætur og leyfði börnum að klappa sér en dróg sig svo í hlé þegar gestirnir voru fullorðnir.

Á sunnudeginum gekk miklu betur. Til að byrja með vildi Folda samt alls ekki fara aftur inn í þetta hús. Þegar hún var hins vegar komin á básinn leið henni betur og tók ástfóstri við ýmsa gesti við fyrstu kynni. Dóra var rólegri en á laugardeginum, en átti nokkra góða spretti, sérstaklega þegar börn litu við hjá okkur. Þær voru þó báðar einstaklega hamingjusamar þegar Ingibjörg og Alexandra vinkonur okkar litu við.

Við fengum afar jákvæð viðbrögð. Flestir höfðu áhuga á að vita til hvers tegundin hefði verið notuð og hvaðan hún væri upprunnin, og nokkrir féllu algjörlega í stafi við fyrstu kynni rétt eins og ég fyrir sex og hálfu áriLaughing

Þetta var í heildina mjög skemmtilegt og þrátt fyrir að hér liggi nú og sofi afar þreyttar Berner-stelpur hlökkum við mikið til næstu Stórhundadaga!

0 | 22.3.2009 18:07:48 #

Hello from France ... I enjoyed to look at your website and your beautiful dogs; I like your breed !!! hugs to your good dogs.
Marie | 0 | 13.3.2009 15:15:58 #

Myndir komnar á vef HRFÍ frá haustsýningunni:

Dómarinn sem gaf bæði íslenskt og alþjóðlegt meistarastig, Dóra og Dóra:

Nöfnurnar stoltar með 4. sætið í tegundahóp 2:

0 | 25.10.2008 22:31:40 #

  • Til hamingju með árangurinn á sýningunni. Alveg frábært! Gullfallegir hundar hjá þér. Kv, Þröstur
    Þröstur
    |
    4.10.2008 17:10:56
  • Hæ Dóra, til hamingju með árangurinn á sýningunni - glæsilegt :)... svona ef þú ert ekki að kveikja á mér þá vorum við saman á sýningarþjálfun hjá Guðrúnu :) kveðja Klaki
    Klaki Cavalierstrákur
    |
    2.10.2008 19:35:33
Hæ hæ :) Þær eru svo flottar skvísurnar þínar Hafrún! Rosa gaman að sjá hana Dóru á sýningunni og innilega til hamingju með glæsilegan árangur hennar!! kv. Íris og litla papillon skvísan Píla
Íris Erlings | 0 | 29.9.2008 18:15:42 #

Dóru gekk alveg svakalega vel á Haustsýningu HRFÍ sem fram fór núna um helgina.

Hún keppti á laugardaginn, 27. sept. 2008, og varð besti hundur tegundar og fékk bæði íslenskt og alþjóðlegt meistarastig.

Þá bætti hún um og gerði enn betur með því að verða í 4. sæti í tegundahóp - litla flotta dúllan mínKiss

 

0 | 29.9.2008 12:39:15 #

Hæ hæ. Mikið eru þið fallegar systur...og það var æðislegt að sjá Dóru með eigin augum á sýningunni á laugardaginn. Mamma okkar þakkar mömmu ykkar líka fyrir skemmtilegt spjall uppi á áhorfendapöllunum. Voffaknús :)
Emma og Krisma | 0 | 22.9.2008 16:49:52 #
  • Blessuð, fékkstu tölvupóstinn sem ég sendi þér á hotmailið þitt? Þurfum endilega að hittast sem fyrst.
    Þröstur
    |
    16.8.2008 11:54:34
  • Langaði til að kvitta fyrir innlit... hún Dóra er stórglæsileg, var einu sinni voða skotin í þessari tegund, en endaði í Golden.. Algerar dúllur Kveðja
    Elísabet
    |
    6.8.2008 15:03:52
  • HÆ ég þekki ykkur ekki en vil samt seiga að þetta er geðveigt flott síða og þið eruð geggjað sætir hundar kk hulda
    HULDA LIF
    |
    29.7.2008 21:53:41
  • Hæhæ:) Rosalega eru þær fallegar stelpurnar, alger bjútí:) Kveðja Stella og co.
    Stella Kristjánsdóttir
    |
    25.7.2008 22:43:47

Lífið er að komast í fastar skorður á Íslandi efir rúman mánuð saman á nýjum stað í nýrri íbúð í nýju umhverfi.

Það hýrnaði mikið yfir Ísunum þegar dótið okkar loksins kom í hús í síðustu viku og þær borða mun betur eftir að þær fengu sínar skálar og sitt dót. Dóra er reyndar kannski fullmikið komin heim, er aftur farin að naga sér til dundurs og núna er það dyrakarmurinn við útidyrnar - kannski greyið sé að reyna að brjótast út?

Stefnum að því að koma okkur upp nýrri æfingarútínu og taka agann föstum tökum, en Ísurnar hafa verið í löngu orlofi frá uppeldi - og betur má ef duga skal, sérstaklega með Dóru litlu sem er á gelgjuskeiði og þarfnast fastra verkefna og reglubundinna æfinga.

Þar sem allt útlit er fyrir gott helgarveður eru uppi áform um dráttaræfingu - og þá aldrei að vita nema Dóra verði spennt fyrir vagn í fyrsta sinn, enda búin að ná leyfilegum aldri!

Folda tekur öllu af meira jafnaðargeði. Ég sé það betur núna að hún er ekki bara hlýðin og róleg, heldur líka farin að eldast, þreytist og mæðist mun fyrr en áður var. Samt er hún í góðu formi og hleypur léttfætt yfir hvað sem er, hvort heldur sem er möl og mólendi eða í mosagrónu hrauni. Hún er hins vegar síður að flýta sér og er farin að drolla í lok langra göngutúra. Hún er líka farin að bíta Dóru mun harkalegar af sér og gerir henni fullvel ljóst þegar leikir og slagsmál eru ekki leyfð.

0 | 18.7.2008 13:56:15 #

Hallo liebe Bernerfreunde, vielen Dank für den lieben GB-Eintrag und ganz viele Grüße an euch und Knuddler an Bernermädchen Isa-Dora. Liebe Grüße Doris mit Finja
Doris | 0 | 10.7.2008 12:05:34 #

Ljósmyndataka 19. apríl 2008: Bettina Montavon ljósmyndari

0 | 0 | 17.5.2008 20:48:34 #